top of page

hjálmar - IV

 

Í draumi 4:16

Þorsteinn Einarsson

 

Lítið fugl 4:31

Þorsteinn Einarsson

 

Manstu 3:52

Hjálmar / Þorsteinn Einarsson

 

Það sýnir sig 3:37

Sigurður Guðmundsson

 

Lýsi ljós 5:59

Þorsteinn Einarsson

 

Heyrist hverjum 4:13

Aston Barrett, Carlton "Carlie" Barrett / Bragi Valdimar Skúlason

 

Hvert sem ég fer 4:01

Þorsteinn Einarsson

 

Taktu þessa trommu 4:16

Þorsteinn Einarsson

 

Hærra ég og þú 4:20

Þorsteinn Einarsson

 

Þá mun vorið vaxa 4:01

Þorsteinn Einarsson / Einar Georg Einarsson

Hjálmar

Þorsteinn Einarsson

Sigurður Guðmundsson

Guðmundur Kristinn Jónsson

Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson

Helgi Svavar Helgason

 

Cat Coore – Gítar

Sticky – Slagverk

Robbie Lyn – Píanó, Hammond

Samúel Jón Samúelsson – Básúna

Óskar Guðjónsson – Saxafónn

Snorri Sigurðsson – Trompet

Nicole (Nikki) Burt - Raddir

Althea Layne-Hamilton- Raddir

Everol Wray - Trompet

Dean Fraser - Sax

Ronald'Nambó Robinson – Básúna

Dwight Richards - Trompet

Hljóðritað í Tuff Gong og Harry J, Kingston og Hljóðrita, Hafnarfiði

Hljóðblöndun og hljómjöfnun, Hljóðriti

 

Upptökumenn

Guðmundur Kristinn Jónsson

Sigurður Guðmundsson

Stephen Stewart

Sheldon Sally

Roland McDermott

Michael Box Howell

 

Hljóðblöndun

Guðmundur Kristinn Jónsson

Sigurður Guðmundsson

 

Hljómjöfnun

Styrmir Hauksson

 

Umslag

Davíð Örn Halldórsson

 

Ljósmyndir

Guðmundur Freyr Vigfússon

Uppsetning

Karítas Pálsdóttir

  

Útgefandi Borgin

2009

IV.jpg

Í draumi (4:16)

Þorsteinn Einarsson

 

 

Fögur varstu þá

þig í draumi fékk að sjá

augað glampar á

sem í enni þínu sá

óendanleg þrá

fyllir mig og eftirsjá

 

eitthvað átt þú enn í mér

örlög mín í höndum þér

 

og því fer sem fer

enginn virðist gá að sér

sannleikurinn hér

hann er gerður opinber

veruleikinn er

það sem fyrir augum ber

 

og dragi fyrir sólu ský

sé ég ljósið fyrir því


 

Lítill fugl (4:31)

Þorsteinn Einarsson

 

 

Út við flóa bíður föngum búið skip

og ég fæ víst engu um það breytt

gamla fljótið hefur fengið annan svip

og ég finn því þykir það svo leitt

 

fljúgðu litli fugl

og farðu víða með erindin þín

 

ef ég aðeins gæti fengið með þér far

og þitt flug mig færði í annan heim

yfir hafið út að hjara veraldar

og svo hátt yfir fjöllin út í geim

 

fljúgðu……..


 

Manstu (3:52)

Hjálmar / Þorsteinn Einarsson

 

Manstu það manstu það

þegar að við gengum út í nóttina

hvað er að hvað er að

ertu ekki lengur sammála

 

ég legg það inn

á stóra reikninginn

 

segðu mér segðu mér

varstu ekki stundum einmanna

 

ég legg það inn………..


 

Það sýnir sig (3:37)

Sigurður Guðmundsson

 

 

Ekkert að sjá þótt þú setjist uppá.

Soldið á ská.

En það hefst að lokum.

Og sýnir sig… kannski seinna.

 

Veist ekki hvað en þú situr áfram

á sama stað,

það gæti gerst

að það sýni sig hugsanlega nú.

 

Ofan við ský er álft á flugi

og endurtekur fyrir bí

að jafnan hafi til þess sést hér

þó ekkert bóli nú á því.

 

Kannski er svo enn

að þú sitjir stilltur.

Því svona eru menn,

einn viss, einn villtur.

Það sýnir sig…


 

Lýsi ljós (5:59)

Þorsteinn Einarsson

 

 

Allt sem er mér kært

hefur þú mér fært

þú sem þekkir alla vegi

og lýsir ljósið skært

 

ég vil til þín ná

ég þrái þig að sjá

ég leita þín í bláskini mánans

ég bægi skýjum frá

 

ef í myrkri ljós gæðir lífi rós

gæti það ei lýst þér veginn

og gefið lítið hrós

Heyrist hverjum (4:13)

Aston Barrett, Carlton "Carlie" Barrett / Bragi Valdimar Skúlason

 

Veröldin er varasöm

víða leynist brotalöm

þá getur vargur reynst vinur í raun

er vinir þig níða og svíkja á laun

 

sætan ávöxt syndin ber

semþeir bera á vörum þér

allt þartil tjöld taka að falla

og tímans slög dæma alla

 

Heyrist hverjum bjallan glymur

þarna hljómar hún, þarna ómar hún

 

 

Sumir hata verði þeim að því

þeim er hjartað og sálin þung sem blý

en elska þá sem illu sá

og sjá, það líður hjá

 

Hræddir menn og hræsnarar

hrærast jafnan allsstaðar

auðnist þér að aftra þeim

eygja von um betri heim

 

Heyrist hverjum bjallan glymur

þarna hljómar hún, þarna ómar hún

 

 

Hvert sem ég fer (4:01)

Þorsteinn Einarsson

 

Hvert sem ég fer fylgir þú mér

ég mynd þína ber í huga mér

 

helju úr heimt hefur þú mig

grafið og gleymt gefið mér þig

 

létt er min lund lauguð af þér

gyllir nú grund geislanna her

 

hver sem ég er fylgir þú mér

ég mynd þína ber í hjarta mér

 

 

Taktu þessa trommu (4:16)

Þorsteinn Einarsson

 

 

Taktu þessa trommu

og teygðu á hana skinn

veldu þér svo vísu

og vektu mannskapinn

 

strengdu hár í hörpu

og hafðu upp þína raust

þessi heitu hjörtu

hamast skilyrðislaust

 

þetta er allt sem ég óska mér

að ég geti glaðst hér með þér

engar áhyggjur þetta fer allt vel

einhvern dag trúðu mér

 

stillum okkar strengi

setjum markið hátt

lifum vel og lengi

því þá leiðist okkur fátt

 

hafi ég á hendi

heimsins bestu spil

sorgirnar þá sendi

í svartan myrkan hyl

 

Verður allt í lagi

 

  

Hærra ég og þú (4:20)

Þorsteinn Einarsson

 

 

Það er ekkert vinstri nú

og hjá hægri er þrotið bú

hærra ég og þú hærra ég og þú

 

ef þú aðeins hefur trú

og efastu ekki nú

hærra ég og þú hærra ég og þú

 

vinstri það er ekki til

og hægri er búið spil

hærra ég og þú hærra ég og þú

 

 

Þá mun vorið vaxa (4:01)

Þorsteinn Einarsson / Einar Georg Einarsson

 

 

Gleymdu gengnum vetri

og glitþráð lífi spinn

því senn mun vorið vista

veruleika þinn

 

ef þú svo hreinsar hugann

og harmatár af kinn

þá mun vorið vaxa

í vitund þína inn

bottom of page